Leiðist..
Halló halló..kominn tími á nýtt blogg held ég. Ég er stödd heima í Vallanesi núna með magapest..Rúnar fór á fjöll með Eisa og fleirum, vonandi er það gaman, ég nennti ekki með því að Massa hætti við að fara og svo útaf þessari pest líka auðvitað. Annars gengur allt sinn vanagang, skólinn byrjaður ég er í 16 einingum + 5 í fjarnámi, svo nú er eins og gott að reyna að standa sig! Það er nú ekki beint ókeypis heldur þetta helvítis fjarnám, 5000 kjell á einingu
En já..svo er maður að fara að reyna að koma sér í form, búin að skrá mig á 6 vikna átaksnámskeið, 3svar í viku! Ég hlýt að vera orðin endanlega klikkuð en árangurinn HLÝTUR að skila sér
Ég var að komast að því að ég á ekki nema 4 og hálft hross held ég, 1 er ég sennilega að fara að selja (vantar ávallt pening) og 2 má selja ef einhver vill kaupa þau, já svona er að vera fátækur námsmaður - farinn að selja öll gersemin sín piff...en þegar ég er orðin rík og stór á kaupi ég bara ennþá betri hross
Ég er að reyna að búa til myndasíðu á 123.is, eru bara komnar 2 inn ennþá þetta gengur hálfbrösulega hjá mér...ég set inn linkinn hér ef þetta tekst einhverntímann - annars ekki. Í dag er ég búin að gera ósköp lítið, settum inn 2 folöld sem verið er að selja, kíkti inn í gömlu hús og sá þar 6 smákálfa...ohhhh ég ætla sko ekki að koma nálægt þeim þegar þeir eru orðnir stór og bölvandi naut, ég er skííthrædd við naut. Fæ alltaf martraðir, já talandi um martraðir, í nótt þá dreymdi mig hross sem að pabbi og Kobbi voru eitthvað að braska með (það er til dáldið af þeim hér) og þetta var brún meri, mjög stór og flott og með blesu og hringeygð og hún réðst á mig og ég var alveg stórslösuð...svo var ég allt í einu komin heim í bæ og þar var fullt af gestum og étandi glás af kökum og ég líka..man ekki meira. Eru einhverjir draumráðendur meðal lesenda þessarar síðu? nei nei grín grín...
Jæja ég hef sosum ekkert að segja en ég er amk á lífi..
Bæjó þar til næst!
Jólin
Góðan og blessaðan daginn :) Nú er ég stödd á Akureyri, reyndar alein, en það er þessi blessaða vinna sem að heldur mér hérna víst..kom hingað annan í jólum af því að það átti að vera svo vont veður í gær, en það var að sjálfsögðu bara blíða - eða því sem næst! Típískt...þannig að ég missti af jólaboðinu hjá ömmu í gær á meðan það var bara fínasta veður á heiðinni, svona er lífið bara ekki alltaf að marka þessar veðurspár... En allavega þá er ég bara að bíða eftir að klukkan verði 5 svo ég geti drifið mig að þrífa leikskólann því að svo er ég að fara austur eftir þaðMatarstell 4ra manna, steikarpönnu með loki, bókina Íslenski hesturinn, kertastjaka úr saltkristal - mjög flottur, bol sem á stendur "lovemaking trolls" og skýringarmyndir hehe, kökukefli, bjórkönnu, matreiðslubók, konfekt, styttu...ég man a.m.k. ekki eftir fleiru núna ég held það sé komið, ég á þetta nú ekki allt ein reyndar þar sem að við Rúnar fengum einhverja pakka saman, sem ég að sjálfsögðu opnaði alein

Hér er nýleg mynd af systkinabörnunum mínum, Bergdís Heiða sem er 8 mánaða og Valdimar Kolka sem er að verða 16 mánaða
Þetta er nóg í bili, ætla að reyna að láta tímann líða!
hóhóhóó..
Í dag eru 3 dagar til jóla, ekki er það nú mikið. Ég get ekki beðið eftir að þessi dagur líði, því þegar ég verð búin að skúra í kvöld þá fer ég heim í jólafrí, reyndar er það ekki langt frí því að síðan þarf ég að vinna 27. og 28. ohhhh ömurlegt að þurfa að hanga ein á akureyri um jólin til þess eins að skúra í einhverja 2 tíma! Ekkert smá fúl..svo er ég orðin ægilega svöng og það er ekkert til að éta, þori samt ekki að fara til að versla mér eitthvað því ég er að bíða eftir einhverjum sem á pakka hjá mér, ég er orðinn hálfgerður jólasveinn ég keyrði út pakka í gær svo það er nóg að gera hjá jólasveininum í árGleðileg jól og takk fyrir árið sem er að líða!
sleðaferð
Halló halló...þá er komið að nýju bloggi, ég var að setja upp seríu inn í herbergi ógisslega flotta..svo setti ég aðventuljósið í samband og pakkaði inn gjöfum þar á meðal gjöfinni hans Rúnars því ég treysti því ekki að hann fari ekki að snuðra hehe...jújú grín grín..held ég hafi næstum því klárað að kaupa jólagjafirnar í gær nema eina hugsa ég...snemma í þessu, hef lítið betra að gera, skólinn búinn og ég þarf bara að skúra eftir kl. 5..vá gaman! Ég er samt að fara í bíó í kvöld með Mössu, ætlum á Saw 4 bara tvær af því að karlarnir okkar þora ekki með...í alvöru ég er ekkert að grínast! Þeir verða bara að fara í bílaleik á meðan eða eitthvað hnjehnje... En já um helgina þá fórum við með Finni ehf á bæinn Skarð í Dalsmynni þar sem við vorum alla helgina. Þetta er svaka stórt hús og fullt af herbergjum og voða fínt allt, svo voru teknir slatti af vélsleðum með og á laugardaginn var leikið sér á þeim þarna, það var gaman þegar ég loksins þorði að keyra sleða ein, það var víst ekkert mál hehe og bara gaman, létum líka keyra okkur upp eftir eitthvað og svo renndum við okkur niður á snjóþotum ægilega skemmtilegt...svo var bara étið og spilað og drukkið og haft gaman, mjög fín helgi þar á ferðinni ;-) já þá hef ég ekkert meir að segja, ætlað halda áfram að skrifa jólakort fyrir þau gömlu þau eru alltof mörg. sæll!!
Hólmar kallinn
Já sæll! Nú sit ég inn í stofu og nenni ekki að fara að skúra..ég ætla að bíða eftir bónda mínum (hehe) fyrst og gefa honum einn koss þegar hann kemur heim og svo ætla ég að elda eitthvað handa okkur, því að síðan þarf hann að fara á fund með 4x4 klúbbnum aka Low gíra klúbbnum. Já ÉG veit hvað Low gír er sem er settur í jeppa...vil bara ekki segja ykkur það
hnje hnje... En ég er að hlusta á disk á tónlist.is, ef ykkur vantar eitthvað til að setja í jólapakkann minn þá er þessi diskur málið! Hann heitir Myndin af þér og er flytjandi enginn annar en Vilhjálmur HÓLMAR Vilhjálmsson, ótrúlegt hvað karlinn er duglegur að gefa út diska þarna fyrir handan, heil 56 lög. En vissuði þetta, millinafn hans var Hólmar og hann var meirað segja alltaf kallaður Hólmar af fjölskyldu sinni þegar hann var ungur og hann var litla barnið, örverpi - eins og ég... Ég fór í dag og keypti alveg eina jólagjöf, ohh það gengur svo hægt að finna eitthvað, er samt búin að kaupa 4 gjafir núna. Ég þyrfti að fara að læra akkúrat núna..en ég bara nenni því ekki. Ég er ægilega löt núna ohh....aulinn ég.
En já á fimmtudaginn síðasta var ég með afmæliskaffi, bakaði ostaköku og brauðrétt og svo bauð ég 4, gat ekki boðið fleirum því við eigum ekki fleiri stóla, en allavega þá var allt uppétið
sem er bara gott mál. Síðan fórum við í Skagafjörðinn á föstudaginn, fyrst voru sett nagladekk undir crúserinn en þau voru alveg 44 tommur! Hin voru sko "bara" 38 tommur og það var nógu erfitt að klifra upp í bílinn þegar þau voru undir hehe en ég er ekkert að kvarta sko! Bara ekki vera í þröngum gallabuxum þegar ég er að fara eitthvað í þessum bíl
já þegar það var búið þá brunuðum við af stað, var reyndar ekki mikið brunað því það var ógeðisveður í öxnadalnum og yfir heiðina, sáum stundum bara eina stiku en stundum ekki neina....en yfir komumst við og það tók okkur 1 og hálfan tíma, tekur yfirleitt bara 1 tíma..en já það var fínt bara étið og horft á sjónvarp það kvöld EN svo tók laugardagurinn við í skíííítakulda og hvað haldiði auðvitað er faðir minn svo hygginn að vera búinn að plana daginn fullkomlega svo dagurinn fór í að smala hrossum, setja ormalyf oní allt og örmerkja folöld og nokkur tryppi með Kobba frænda og einhverjum fýlupoka héðan að norðan jiii hvað hann var leiðinlegur...JEYJ, en þetta hefði allt verið skárra ef það hefði ekki verið 10° frost allan daginn, sjitt hvað mér var kalt! En jæja svo stungum við af og fórum á Krókinn og þar í mat hjá tengdapabba og famílíu sem var ágætt, en svo tókst þeim að draga okkur með sér á tónleika í kirkjunni með KK og Ellen. Jújú það var sosum ágætt bara ægilega þreytandi...ég var eiginlega allan tímann að spá í málverkinu fyrir aftan þau, þ.e. altaristöflunni sem var af Jesú og tveimur öðrum köllum og ég var búin að finna marga galla, til dæmis þá rétti Jesús höndina upp í loft og hún var nokkuð mörgum númerum of lítil, eins og hönd á barni og passaði engan veginn, svo var annar hinna ekki í neinu jafnvægi þ.e. lappirnar voru ekki á réttum stað og það var eins og hann væri að detta, ég var búin að finna eitthvað meira út, má maður kannski ekki segja hvað altaristöflur eru bjánalegar? En já svo kláruðust tónleikarnir og við fórum heim að sofa. Á sunnudaginn átum við bara steik hjá mömmu, voða gott, og fórum svo útaf spánni. Komum reyndar við í KS því að ég varð að heilsa upp á hana Siggu mína
Síðan var farið á Akureyris og það var ágætis færð bara, vorum á undan vonda veðrinu, ef það kom einhverntímann.... EN JÆJA núna er karlinn minn kominn heim svo ég ætla að slútta þessu, LEITER!
afmæli afmæli :)
Sæli nú! Hef ekkert að gera svo ég ætla bara að blogga smá...ég er að hlusta á jólalög btw...
og ég setti upp eina seríu í gær inní stofu! æj það er nú alveg að koma desember! Vel á minnst...þá á ég afmæli á morgun!
Jeyj..ég hlakka til, ég er að spá í að hafa pínu afmæliskaffi og bjóða einungis fáum útvöldum - vegna þess að við eigum bara 6 stóla hehe, auk þess nenni ég ekkert að bjóða fullt af fólki sko, ég er eiginlega búin að ákveða hvað ég ætla að baka, þarf bara að hringja í mömmu á eftir og spurja hana ráða. Og jeyj..við erum að fara heim um helgina, ekki á morgun heldur hinn, ég hlakka líka til þess. Það er svoo gott að komast heim HEIM
Humm hvað ætlaði ég að segja meir...æj örugglega ekkert merkilegt. læt þetta duga í bili
bæjó
Skíttu' í grímuna á þér...
Jæja, þá er komið að því að segja frá helginni. Humm...hún byrjaði á fimmtudaginn, þá fórum við á tónleika með Hvanndalsbræðrum á græna hattinum, þeir voru alveg hreint magnaðir! Reyndar búnir að henda lopapeysunum og flottu ullarhúfunum og komnir í köflóttar kvartbuxur og svartar skyrtur, fannst þeir eiginlega bara miklu svalari hinsveginn..en hvað um það! Á föstudaginn fór ég í 1 tíma..þá var skólinn búinn og ég fór heim og gerði eitthvað ég man það ekki, fékk svo í magann og var að deyja í honum og hálfsjúskuð eitthvað, svo komu gestir. Marsibil og Eisi kíktu við og svo komu Fannar og Stessi, sumir fyllri en aðrir sem er bara gott mál. Þeir stoppuðu stutt við og við hin héldum áfram að horfa á sjónvarpið ég var ægilega spennt yfir einhverri mynd svo kláraðist hún og gestirnir drifu sig heim og við í rúmið...Nú nú..laugardagur: Við Rúnar fórum og eyddum smá pening, fórum í Gallerý og hann keypti sér diesel gallabuxur og ég pils, við ætluðum sko að vera ægilega flott um kveldið ;) Svo fórum við á Sprettinn og keyptum pitsu og gáfum þunnyldonum sem heima voru (Fannar og Stessi)...hehe eftir það klæddum við okkur mjög vel og fórum niður á verkstæði Finns ehf en þar átti að hefjast "Finns Amazing Race", hluti af árshátíðinni. En nei nei..helduru að það hafi ekki bara komið einhver Boot Camp þjálfari og sá kunni að pína fólk! Við fórum í "upphitun" sem voru endalausar armbeygjur og setjast og standa upp 50 sinnum o.s.frv. og svo var okkur skipt í lið og farið í einskonar boðhlaup nema það þurfti að gera einhverjar æfingar með að sjálfsögðu....jeminn þetta var hræðilegt! Ég er nú ekki í besta forminu og þetta tók SKO á, svo loksins hætti kallpúngurinn að pína okkur og þá gátum við snúið okkur að drykkjunni smá stund og andað léttar. Því næst byrjaði reisið. Það virkaði þannig að hvert lið fékk umslag með fleiri umslögum inn í og vísbendingum á hverju umslagi. Flest stig fengum við ef við opnuðum sem fæst umslög og föttuðum staðinn sem átti að finna. Þetta var ægilega gaman, á stöðunum sem voru 4 voru svo einhverjar þrautir sem liðin áttu að leysa. Það var fyrst reykköfun þar sem við áttum að finna dauðann mann (dúkku),það var reyndar enginn reykur vorum bara með einhverjar grímur sem við sáum ekkert í gegnum. Svo áttu konurnar að keyra svona minigröfu einhverja, veit ekkert hvað svona kallast, keyra hana að sandhaug og moka ofan í hjólbörur og bakka henni og karlarnir áttu að þamba áfengi úr FÖTU..hehe, ég stóð mig víst mjög vel að moka miðað við sumar aðrar...síðan var þraut þar sem 2 úr hverju liði keyrðu rafmagnsbíla kringum kirkjuna...og svo var pungaát og singstar. Við stóðum okkur greinilega bara ágætlega í mínu liði og vorum í 2. sæti en Rúnar var í tapliðinu í 4. sæti..hnjehnje...
En nú er síðasta kennsluvikan í skólanum hafin, þetta verður eitthvað lítill skóli líka, held ég fari ekki í neinn tíma á föstudaginn t.d. svo byrja prófin á mánudaginn. En gaman...það sem er leiðinlegast núna er að þótt ég sé búin í skólanum fyrir miðjan desember þá þarf ég samt að vera hérna til 21.desember útaf vinnunni, þessum heilu tveimur tímum á dag sem það tekur mig að þrífa...ojæja þá er gott að hafa Rúnar hérna líka:) ætli hann fari ekki austur á svipuðum tíma og ég bara..;) Annars á ég afmæli á fimmtudaginn :) ég vildi nú bara rétt koma því að sko....nei grín, við ætlum að fara heim um helgina til að fá köku hjá mömmu og svo er okkur boðið í mat til tengdapabba og co. svo það verður nóg átið um helgina eins og venjulega, síðastliðnar helgar hafa verið svaðalegar! Það var árshátíð 4x4 á hótel kea, landsfundur 4x4, jólahlaðborð með Toyota á Austurlandi í Sveinbjarnargerði og núna síðast árshátíð Finns, allar síðustu helgar...úff! En já það verður ljúft að fara heim og hafa það gott, spjalla við litlu vini mína Gulla jr. og Dissa, það er voðalega gaman að hitta þá! Ég skrapp nefnilega heim í síðustu viku þegar ég var búin svo snemma í skólanum og hitti kisurnar mínar já og foreldra mína, ekki má nú gleyma þeim hehe, það var orðið svo langt síðan ég komst heim síðast.
Já jæja..ég man ekki eftir fleiru sem ég ætlaði að segja enda hlýtur þetta að vera nóg í bili!
Endurkoman mikla
Jæja ég hef ákveðið að gera tilraun til þess að endurvekja þessa síðu mína því ég hef ekkert skárra að gera, ég tók meira að segja eftir því að það var nákvæmlega ár, í gær, síðan ég bloggaði hérna síðast
Vá hvað það hefur margt gerst á þessu ári, ég eyddi gömlu færslunum því þær voru bara bull, ég skildi það varla sjálf hvað ég skrifaði...en já það besta sem gerðist á árinu var að ég kynntist Rúnari
Þar sem við vorum bæði að fara í skóla á Akureyri, sem var bara tilviljun, þá ákváðum við að búa bara saman, reyndar ásamt annari manneskju sem við höfum núna yfirgefið því það var eeendalaust vesen á henni. Svo að við fluttum út um mánaðarmótin síðustu og búum núna í Grenilundinum og þar er frábært að vera! Ég er ekkert lítið fegin að við fluttum, hefðum átt að gera það miklu fyrr! En ég er semsagt í VMA og stunda þar nám á myndlistabraut og ÞAÐ er mjög gaman, eitthvað fyrir mig, eftir áramót er ég að spá í að taka bara myndlistaráfanga og jafnvel vinna meira með kannski, eins og einhverjir vita þá skeit ég á mig með skólann þegar ég var í FNV og hætti og var að vinna í 1 1/2 ár ca. í KS og það er ótrúlega erfitt að byrja aftur og reyna að falla ekki í sama farið, þannig að ég tek þessu bara rólega! Enda hvað liggur manni á...
Um helgina fórum við Rúnar á jólahlaðborð í Sveinbjarnargerði með Toyota á Austurlandi, það var ágætt það var étinn fínasti matur og drukkið vel með og spjallað og sungið og bölvað pólverjunum sem þarna voru því þeir voru að snuðra inn á herbergin hjá fólkinu og stelandi, svo var boðið upp á gistingu þarna og það var ægilega fínt, nema það var vond klósettfýla einhver inn á herberginu okkar
fyrir utan það var þetta fínt. Ohh hvað það voru sorglegar fréttirnar af fjósinu sem brann ásamt 200 nautgripum! Ég fann svo til með aumingja skepnunum og fólkinu á bænum, þetta hlýtur að vera hræðilegt fyrir þau. Mér fannst það nógu sorglegt þegar öllum kindunum í Vallanesi var lógað, þá komu mörg tár, svo að ég skil alveg að þetta er vont að missa dýrin sín![]()
En jæja ég er hætt í bili, reyna að láta minna en ár líða þar til ég blogga næst:) Svo fer ég að skella inn myndum við tækifæri...
Bæjó, Valla.
